Greinar
Söngur og gleði í árlegu kaffiboði

Söngur og gleði í árlegu kaffiboði

Byggiðn býður eldra félagsfólki árlega í veglegt kaffiboð, sem venjulega er haldið í febrúarmánuði. Eins og kynnt hafði verið í tölvupósti og hér á síðunni var kaffiboðið haldið síðastliðinn sunnudag, 15. febrúar.

Þar steig hljósveitin Strengir á stokk auk þess sem Stefán Pálsson sagnfræðingur flutti erindi af sinni alkunnu snilld. Byggiðn færir eldri félögum kærar þakkir fyrir samveruna.