Opið fyrir bókanir í sumar
Sumarúthlutun orlofshúsa er lokið og húsið og nú er opið fyrir bókanir. Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Vikuleiga í orlofshúsin þetta árið kostar á bilinu 33.500 – 42.000 krónur en verðið hefur nokkurn veginn fylgt verðlagi undanfarin ár. Stærð húsanna og staðsetning stýrir verðinu, sem er þó afar hófstillt.
Athygli er vakin á því að Byggiðn hefur látið útbúa húsbækur í flest orlofshús félagsins. Þar er meðal annars að finna upplýsingar um sögu staðarins, afþreyingu á svæðinu, svo sem golfvelli, sundlaugar
og veiði, auk ýmissa annarra hagnýtra upplýsinga. Það er von félagsins að gestir orlofshúsanna muni hafa bæði gagn og gaman af bókunum.
