Greinar
IÐAN býður aðeins upp á fjarkennslu

IÐAN býður aðeins upp á fjarkennslu

IÐAN fræðslusetur mun næstu fjórar vikurnar aðeins halda námskeið sem kennd eru í fjarkennslu. Þetta kemur fram á Facebook-síðu setursins. Þetta er gert vegna þess samkomubanns sem tekið hefur gildi vegna COVID-19 faraldursins.

IÐAN boðar að unnið sé að auknu framboði námskeiða sem kennd eru í fjarkennslu en að þau verði nánar kynnt í þessari vku. Byggiðn mun greina frá þeim upplýsingum þegar þær berast.