Greinar
Hvað með ógreitt orlof?

Hvað með ógreitt orlof?

Við gjaldþrot fyrirtækis ábyrgist Ábyrgðasjóður launa greiðslu á ógreiddu og áunnum orlofslaunum starfsmann á síðustu 18 mánuðum fyrir gjaldþrotaúrskurð launagreiðanda.

Hámarksábyrgð á greiðslum áunnina orlofslauna eru kr. 599.000.

Ef atvinnurekandi hins vegar stendur ekki í skilum með greiðslu orlofslauna skv. 7. eða 8. gr. laga um orlof nr. 30/1987, án þess þó að bú hans hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta, getur starfsmaður eða hlutaðeigandi stéttarfélag í umboði hans snúið sér til Ábyrgðasjóðs launa með orlofslaunakröfuna. Krafa skal studd fullnægjandi gögnum um fjárhæð hennar, svo sem launaseðlum og vottorði viðkomandi atvinnurekanda eða löggilts endurskoðanda hans.
Ef krafa launamanns uppfyllir framangreind skilyrði skal Ábyrgðasjóður launa þegar í stað skora á vinnuveitanda að greiða kröfuna eigi síðar en þremur vikum frá dagsetningu áskorunar.
Komi fram andmæli af hálfu vinnuveitanda sem sjóðurinn telur réttmæt, svo sem um að krafan hafi þegar verið greidd eða hún niður fallin af öðrum ástæðum, skal sjóðurinn vísa kröfunni frá. Kröfu launamanns skal einnig vísað frá ef fram er komin beiðni um gjaldþrotaskipti á búi vinnuveitanda.
Standi framangreind atriði ekki í vegi fyrir því að greiða megi kröfu launamannsins skal Ábyrgðasjóður launa innleysa kröfuna eigi síðar en fimm vikum frá dagsetningu áskorunar.

Ef grunur leikur á að fyrirtæki muni ekki greiða áunnin orlofslaun er félagsmanni Fagfélagsins bent á að hafa samband við skrifstofu Fagfélagsins.