Greinar
Fundur um uppbyggingu húsnæðis

Fundur um uppbyggingu húsnæðis

Þriðjudaginn 28. apríl halda ASÍ og BSRB opin fund um húsnæðismál í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. 

Þar verður sjónum beint að almenna íbúðakerfinu og ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu. Á fundinum verður m.a. kynnt ný greining samtakanna um félagslegt húsnæði og þróun almenna íbúðakerfisins.

Fundurinn fer fram í Eddu, húsi íslenskunnar á Arngrímsgötu 5 og stendur frá kl. 9-10.30. Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30. 

Dagskrá:

8:30     Húsið opnar 
9:00     Opnunarávarp –  Finnbjörn A Hermannsson, forseti ASÍ 
9:05     Saga og tilurð almenna íbúðakerfisins og Bjargs íbúðafélags – Myndband 
9:10     Kynning á nýrri greiningu um félagslegt húsnæði og almenna íbúðakerfið 
Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ og Jana Víglundsdóttir hagfræðingur BSRB
9:30     Saga íbúa í Bjargi – Myndband 
9:35     Húsnæðisstefnu stjórnvalda og hlutverk sveitarfélaga  
Anna Guðmuna Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS 
9:50     Saga íbúa í Bjargi – Myndband 
9:55     Pallborðsumræður
Dagur B Eggertsson, formaður aðgerðahóps stjórnvalda í húsnæðismálum
Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og stjórnarmaður í Bjargi
Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags
10:30  Fundarslit

Fundarstjóri er Brynja Þorgeirsdóttir.