Fjórtán húsasmiðir fengu sveinsbréf fyrir norðan
Fjórtán húsasmiðir tóku við sveinsbréfum sínum við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri í þann 21. apríl en í athöfninni tóku einnig fjórir sveinar í hársnyrtiiðn, fimm stálsmiðir og 12 vélvirkjar við bréfum sínum. Það var IÐAN fræðslusetur sem stóð að venju fyrir athöfninni.
Jón Bjarni Jónsson og Sigmundur Kristberg Magnússon önnuðust afhendingu sveinsbréfa fyrir hönd félagsins. Byggiðn óskar þessum glæsilega hópi nýsveina til hamingju með réttindin sín.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á athöfninni.














