Greinar
Atvinnuleysisbætur

Atvinnuleysisbætur

Í huga margra eru atvinnuleysisbætur og sækja um atvinnuleysisbætur tákn um vissa uppgjöf og niðurlægingu. Það er rétt að atvinnuleysisbætur geta aldrei orðið varanleg lausn á framfærslu einstaklinga og fjölskyldna. Hins vegar geta komið upp aðstæður þar sem þær eru eina lausnin í tímabundnum vanda.

Allir sem hafa verið á vinnumarkaði í þrjá mánuði eða meir eiga rétt á atvinnuleysisbótum ef þeir missa vinnuna. Til að fá fullaratvinnuleysisbætur þarf að hafa unnið fulla vinnu í a.m.k. 12 mánuði.

Hér til hægri á síðunni eru hlekkir til að smella á til að fá nánari upplýsingar um það hvernig á að sækja um atvinnuleysisbætur. Það er mismunandi eftir því hvort umsækjandi var launamaður eða sjálfstætt starfandi. Þar er líka að finna upplýsingar upphæðir atvinnuleysisbóta, hlutverk svæðisvinnumiðlanna, ef starfshlutfall hefur verið skert.

Síðasti hlekkurinn „Ert þú að tapa réttindum“ er mjög mikilvægur fyrir alla að kynna sér. Því að ef ekki er valið að greiða til stéttarfélags og Fagfélagið valið sem stéttarfélag skerðast öll áunnin réttindi hjá félaginu.

Komi upp spurningar vegna umsóknar um atvinnuleysisbætur eða að eitthvað er óljóst endilega að hafa samband við skrifstofu Fagfélagsins í síma 535-6000.