Aðalfundi lokið – nýr varaformaður kjörinn
Aðalfundur Byggiðnar fór fram á mánudag. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf. Formaður kynnti skýrslu stjórnar og farið var yfir ársreikning félagsins árið 2025, svo eitthvað sé nefnt.
Nýr varaformaður félagsins var kjörinn á fundinum; Andri Sveinn Jónsson.
Nýr varamaður í stjórn félagsins er Jóhannes Jakobsson.
Mæting á fundinn var ágæt en léttar veitingar voru á boðstólnum. Félagið færir þátttakendum fundarins þakkir fyrir þátttökuna.



