Greinar
Vinnuhelgi stjórnar og trúnaðarráðs

Vinnuhelgi stjórnar og trúnaðarráðs

Hátt í 30 fulltrúar sem gegna trúnaðarstörfum fyrir Byggiðn tóku þátt í starfsdögum stjórnar og trúnaðarráðs félagsins dagana 18.–20. september. Fundir helgarinnar fóru fram á Stracta hóteli á Hellu og þóttu takast mjög vel.

Á starfsdögunum var farið yfir það sem efst er á baugi í málefnum félagsins og línurnar lagðar fyrir þau verkefni sem fram undan eru. Viðburðaríkur vetur er fram undan hjá Byggiðn og gaf vinnuhelgin stjórn og trúnaðarráði gott tækifæri til að ræða áherslur félagsins og undirbúa komandi verkefni.

Dagskráin var þó ekki eingöngu bundin við fundarherbergið. Á laugardeginum var jörð félagsins á Stóra-Hofi heimsótt og þar skoðaði hópurinn meðal annars nýtt orlofshús Byggiðnar sem nú er í byggingu. Þá gafst einnig tími til samveru utan funda, meðal annars með heimsókn í Laugarás Lagoon.

Vinnuhelgin var bæði gagnleg og ánægjuleg og skapaði góðan grunn fyrir starf félagsins á komandi vetri.