Greinar
Velferðarsjóður Eyjafjarðar styrktur

Velferðarsjóður Eyjafjarðar styrktur

Byggiðn var á meðal þeirra sem styrktu Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis nú á dögunum, þegar Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni samþykkti 750.000 króna styrk til sjóðsins. Sjóðurinn er sameiginlegt verkefni Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálpræðishersins á Akureyri, Rauða krossins við Eyjafjörð og Hjálparstarfs kirkjunnar og sér um jólaaðstoð og aðra velferðaraðstoð á svæðinu.

Jólaaðstoðin hófst árið 2013 og hefur samstarfið reynst vel. Ákveðið var að stofna sérstakan velferðarsjóð svo hægt væri að veita aðstoð allt árið og halda betur utan um upplýsingar um þörfina í samfélaginu. Starfssvæðið nær frá Siglufirði til Grenivíkur.

Þau sem þurfa á aðstoð að halda um hátíðirnar geta sótt um rafrænt á velferdey.is til og með 4. desember. Hægt er að styrkja jólaaðstoðina með framlögum inn á söfnunareikning sjóðsins eða með kaupum á velferðarstjörnunni sem fæst meðal annars í Lindex á Glerártorgi.

MYND/ Stéttarfélögin á þriðju hæð í Alþýðuhúsinu styrkja Velferðarsjóð Eyjafjarðar. Frá vinstri: Trausti Jörundarson – formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, Sigmundur Kristberg Magnússon – verkefnastjóri hjá Byggiðn, Baldvin Valdimarsson – varamaður í stjórn Velferðarsjóðs Eyjafjarðar, Anna Guðný Guðmundsdóttir – rekstrarstjóri Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, Helgi Sveinbjörn Jóhannsson – starfsmaður f.h. Félags Málmiðnaðarmanna og Eiður Stefánsson – formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni.