Útilegukortið komið í sölu
Athygli er vakin á að Útilegukortið er komið í sölu á orlofsvef félagsins.
Kortið veitir tveim fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins í allt að 28 gistinætur á hverju starfsári þess. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Útilegukortið gildir fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.
Félagið selur kortið félagsfólki á niðursettu verði.
