Uppsagnarfrestur
Uppsagnarfrestur samkvæmt kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Samiðnar er gagnkvæmur, nema annað sé sérstaklega ákveðið. Uppsagnarfrestur miðast annað hvort við vikumót eða mánaðamót, eftir starfsaldri.
Tímabundin ráðning
Heimilt er að ráða starfsmann tímabundið eða til ákveðins verkefnis í allt að þrjá mánuði.
Slíkri ráðningu má segja upp með tveggja vikna fyrirvara miðað við vikumót.
Byggingamenn
| Starfsaldur | Uppsagnarfrestur |
|---|---|
| Fyrstu 6 mánuðir í starfsgrein | 2 vikur miðað við vikumót |
| Eftir 6 mánuði í starfsgrein | 1 mánuður miðað við mánaðamót |
| Eftir 3 ár í starfsgrein | 2 mánuðir miðað við mánaðamót |
| Eftir 5 ár í starfsgrein | 3 mánuðir miðað við mánaðamót |
Málmiðnaðarmenn
| Starfsaldur | Uppsagnarfrestur |
|---|---|
| Fyrstu 6 mánuðir í starfsgrein | 2 vikur miðað við vikumót |
| Eftir 6 mánuði í starfsgrein | 1 mánuður miðað við mánaðamót |
| Eftir 3 ár í starfsgrein | 2 mánuðir miðað við mánaðamót |
| Eftir 5 ár hjá sama fyrirtæki | 3 mánuðir miðað við mánaðamót |
Starfsfólk án sveinsprófs
| Starfsaldur | Uppsagnarfrestur |
|---|---|
| Á fyrsta starfsári | 2 vikur miðað við vikumót |
| Eftir 1 ár samfellt í starfsgreininni | 1 mánuður miðað við mánaðamót |
| Eftir 3 ár samfellt hjá sama fyrirtæki | 2 mánuðir miðað við mánaðamót |
| Eftir 5 ár samfellt hjá sama fyrirtæki | 3 mánuðir miðað við mánaðamót |
Lengri uppsagnarfrestur vegna aldurs og starfsaldurs
Í ákveðnum tilvikum á starfsmaður rétt á lengri uppsagnarfresti af hálfu atvinnurekanda.
Til að rétturinn stofnist þurfa bæði eftirfarandi skilyrði að vera uppfyllt:
- Starfsmaður hefur starfað samfellt í að minnsta kosti 10 ár hjá sama fyrirtæki.
- Starfsmaður hefur náð þeim aldri sem fram kemur í töflunni.
| Aldur starfsmanns | Uppsagnarfrestur atvinnurekanda |
|---|---|
| 55 ára | 4 mánuðir |
| 60 ára | 5 mánuðir |
| 63 ára | 6 mánuðir |
Athugið: Það er ekki nægjanlegt að uppfylla aðeins annað skilyrðið. Bæði 10 ára samfelldur starfsaldur hjá sama fyrirtæki og viðkomandi aldur þurfa að vera uppfyllt.
Þrátt fyrir framangreint getur starfsmaður sjálfur sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Framkvæmd uppsagnar
- Uppsagnarfrestur er gagnkvæmur.
- Allar uppsagnir skulu vera skriflegar.
- Uppsögn skal vera á sama tungumáli og ráðningarsamningur starfsmanns.
Uppgjör við starfslok
Við starfslok skal gera upp öll áunnin réttindi starfsmanns samkvæmt kjarasamningi, þar á meðal:
- orlofslaun,
- orlofsuppbót,
- desemberuppbót og
- áunninn frítökurétt.
Réttur starfsmanns til skýringa
Starfsmaður sem fær uppsögn á rétt á viðtali um starfslok sín og ástæður uppsagnar.
- Beiðni um viðtal skal berast innan fjögurra sólarhringa frá því að uppsögn er móttekin.
- Viðtal skal fara fram innan fjögurra sólarhringa frá því að beiðnin berst.
- Að loknu viðtali, eða innan fjögurra sólarhringa frá því, getur starfsmaður óskað eftir skriflegum skýringum á ástæðum uppsagnar.
- Fallist atvinnurekandi á beiðnina skulu skriflegar skýringar veittar innan fjögurra sólarhringa.
- Fallist atvinnurekandi ekki á beiðnina á starfsmaður rétt á öðrum fundi um ástæður uppsagnar, að viðstöddum trúnaðarmanni eða öðrum fulltrúa stéttarfélags, óski starfsmaður þess.
Þarftu aðstoð?
Ef þú hefur fengið uppsögn og ert óviss um réttindi þín skaltu hafa samband við skrifstofu Byggiðnar. Starfsfólk félagsins getur farið yfir uppsögnina, metið réttindi þín samkvæmt kjarasamningi og aðstoðað þig við næstu skref.
