Unnu iðnaðarstörf réttindalausir
Í nýlegum vinnustaðaeftirlitsferðum Byggiðnar á Suðurlandi og í Reykjavík komu í ljós ýmsir annmarkar á starfsemi fyrirtækja. Á Selfossi reyndist töluvert um að einstaklingar ynnu iðnaðarstörf án tilskilinna réttinda og í Árbæ komu upp brot á kjörum og aðbúnaði starfsfólks.
Eftirlitsfulltrúi Byggiðnar fór í vinnustaðaeftirlit á framkvæmdasvæði í Hveragerði og á Selfossi í samstarfi við stéttarfélögin Báruna og VR. Á Selfossi stóð eftirlitið yfir í tvo daga og var farið á stóran hluta framkvæmdasvæða bæjarins. Sums staðar reyndist töluvert um að einstaklingar án tilskilinna réttinda væru við iðnaðarstörf.
Í eftirlitsferð á vinnusvæði í Árbæ í Reykjavík komu jafnframt í ljós alvarlegir annmarkar á kjörum og aðbúnaði starfsfólks. Starfsmenn voru á föstum launataxta án þess að fá yfirvinnu greidda og höfðu auk þess ekki aðgang að salernisaðstöðu. Þá útvegaði fyrirtækið þeim ekki vinnufatnað.
Einnig vakti athygli eftirlitsfulltrúa Byggiðnar að starfsmenn unnu fyrir eitt fyrirtæki en fengu laun greidd frá öðrum fyrirtækjum. Á launaseðlum var tilgreint að iðgjöld væru greidd til Byggiðnar en hafa ekki fundist í kerfum félagsins. Kjaradeild Byggiðnar vinnur að því að skýra tengsl fyrirtækjanna og kanna kjör og réttindi starfsfólksins. Grunur er um að eitt fyrirtækjanna sé starfsmannaleiga. Byggiðn hefur gert Vinnueftirlitinu viðvart.
Ábendingar skipta máli
Byggiðn hvetur fólk til að hafa samband við félagið ef grunur vaknar um brot á réttindum starfsfólks eða ófullnægjandi aðbúnað á vinnustað. Ábendingar (á byggidn@byggidn.is) geta hjálpað félaginu að finna mál sem annars kæmu ekki upp á yfirborðið og fylgja þeim eftir.
