Greinar
Tjaldsvæðið opið til 15. september

Tjaldsvæðið opið til 15. september

Athygli er vakin á því að tjaldsvæði félagsins á Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi verður opið til 15. september. Enn eru því fjórar helgar til stefnu.

Á tjaldsvæðinu er aðstaða til útilegu öll eins og best verður á kosið; glæsilegt þjónustuhús, rafmagn og fjölbreytt afþreying í nágrenninu.

Verðskrá tjaldsvæðis 2026

Greitt er fyrir hverja gistieiningu, Tjald, tjaldvagn, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíll pr. Sólahring:

Svæði A – rafmagn innifalið:

  • Félagsmaður         kr. 2.500
  • Utanfélagsmaður   kr. 4.000

Svæði B – án rafmagns

  • Félagsmaður         kr. 1.800
  • Utanfélagsmaður   kr. 3.000