Þjóð gegn þjóðarmorði – fjöldafundur á laugardag
Stofnaður hefur verið íslenskur samráðsvettvangur verkalýðs- og almannaheillafélaga gegn þjóðarmorði og hernámi Ísraels í Palestínu og því afskiptaleysi sem einkennt hefur viðbrögð alþjóðasamfélagsins við glæpum Ísraels. Stærstu aðildarfélög ASÍ hafa þegar tilkynnt um þátttöku sína, auk annarra heildarsamtaka launafólks. Byggiðn er á meðal þeirra sem taka þátt.
Hópurinn kallar sig Samstaða fyrir Palestínu og boðar til breiðrar samstöðu á Íslandi um kröfu til stjórnvalda um tafarlausar aðgerðir til að stöðva þjóðarmorðið.
Efnt verður til samstöðufunda víðsvegar um landið 6. september næstkomandi, í Reykjavík, á Ísafirði, Egilsstöðum og Akureyri og hvetjum við alla til að mæta á þá fundi eins og kostur er.
Í fundarboði segir:
ÞJÓÐ GEGN ÞJÓÐARMORÐI – Fjöldafundur laugardaginn 6. september kl 14:00 á Austurvelli í Reykjavík
Í nær tvö ár hefur heimsbyggðin fylgst með sífellt versnandi og óbærilegum þjáningum almennra borgara í Palestínu með hryllingi. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir fimmta og þar með efsta stigi hungursneyðar. Hún er alfarið manngerð af völdum Ísrael sem hefur lagt ræktanlegt landsvæði í rúst á Gaza og lokað fyrir að matvæli berist til íbúa. Samkvæmt gögnum ísraelska hersins eru 83% þeirra sem Ísrael hefur myrt almennir borgarar. Þar af eru a.m.k. 18.500 börn eða um 28 börn á hverjum einasta degi, álíka mörg og heill bekkur í grunnskóla á hverjum degi.
Þjóðarmorð stendur yfir af hálfu Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni. Stríðsglæpi Ísraels verður að stöðva.
Ríkisstjórn Íslands hefur líkt og aðrar ríkisstjórnir vestrænna ríkja ekki brugðist við glæpum Ísraels í samræmi við alvarleika þeirra. Nú hafa heildarsamtök launafólks, verkalýðsfélög, mannúðarsamtök, fagfélög og önnur samtök tekið saman höndum til að halda mótmælafundi um land allt þar sem almenningur kemur saman til að sýna samstöðu sína með Palestínsku þjóðinni og krefjast þess að íslensk ríkisstjórn grípi til alvöru aðgerða til að sýna afstöðu sína gegn þjóðarmorðinu!
Við höfnum þjóðarmorði og brotum Ísraels á alþjóðalögum. Tími yfirlýsinga og undanbragða er liðinn, tími aðgerða er runninn upp!
Fjölmennum á Austurvöll þann 6. september klukkan 14.00 og krefjumst tafarlausra og markvissra aðgerða íslenskra stjórnvalda gegn þjóðarmorðinu!
