Greinar
Sumarlokun og umsóknir um sjúkradagpeninga

Sumarlokun og umsóknir um sjúkradagpeninga

Athygli er vakin á því að skrifstofur félagsins verða venju samkvæmt lokaðar síðustu tvær vikurnar fyrir verslunarmannahelgi. Lokað verður frá 20. júlí til 3. ágúst. Opnað verður á ný þriðjudaginn 4. ágúst. Félagar eru hvattir til að beina erindun sínum til félagsins tímanlega fyrir sumarlokun.

Styrkir og sjúkradagpeningar:

  • Umsóknir um styrki og sjúkradagpeninga þurfa að berast í síðasta lagi mánudaginn 13. júlí.
  • Styrkir verða greiddir út þriðjudaginn 14. júlí
  • Sjúkradagpeningar greiðast út föstudaginn 31. júlí.
  • Styrkumsóknir sem berast eftir 14. júlí verða greiddar út þriðjudaginn 11. ágúst
  • Umsóknir um sjúkradagpeninga sem berast eftir 14.júlí greiðast út mánudaginn 31. ágúst.

Orlofshús: Varðandi fyrirspurnir vegna útleigu á orlofshúsum vekjum við athygli á þeim upplýsingum sem fram koma í leigusamningi þar sem m.a. má finna símanúmer umsjónarmanns. Leigusamningur er sendur á netfang félagsmanns þegar orlofseignin er bókuð. Einnig er hann aðgengilegur undir „Mínar síður“.

Veiðikort og útilegukort: Veiðikort og útilegukort er hægt kaupa á Mínum síðum og fá rafrænt í síma, þá þarf ekki að bíða eftir afhendingu. Síðasti dagur til að kaupa kortin og sækja á skrifstofu fyrir sumarlokun er föstudagurinn 17. júlí. Athugið að þann dag er opið til kl. 15. Á meðan lokun stendur er að sjálfsögðu hægt að kaupa kortin sem verða þá send í pósti. Að loknum kaupum er einnig hægt að hafa samband við Veiðikortið/Útilegukortið og sækja beint hjá söluaðila í stað þess að bíða eftir afhendingu í pósti.