Greinar
Sumarferð eldri félaga 1. júlí – skráning

Sumarferð eldri félaga 1. júlí – skráning

Árleg ferð eldri félaga verður miðvikudaginn 1. júlí nk. Velkomnir eru félagar sem náð hafa lífeyrisaldri. Að þessu sinni verður ferðinni heitið til Flateyjar á Breiðafirði, enda leyfi veður og aðstæður sjóferðina. Ef veður hamlar siglingu verður farið í aðra áhugaverða ferð um Stykkishólm og nágrenni.

Lagt verður af stað frá Árbæjarsafni klukkan 8:00 og gert ráð fyrir notalegum degi í góðum félagsskap. Makar eru velkomnir í ferðina en félagsmenn geta einnig valið um að bjóða með sér vini.

Þátttökugjald fyrir félagsmann er 10.000 krónur. Hjón eða sambýlisfólk greiða saman 14.000 krónur. Athugið að vinir greiða fullt gjald. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka eftir skráningu.

Takmarkað sætaframboð er í ferðina þar sem aðeins eru 63 sæti í rútunni. Því eru félagsmenn hvattir til að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti.

Hlökkum til að eiga með ykkur ánægjulegan sumardag í góðum félagsskap.

Gætið þess vel að fylla í alla reiti. Ef þið lendið í vandræðum með skráninguna getið þið sent póst á netfangið byggidn@byggidn.is eða hringt í síma 5470300.

Skráning í ferð eldri félaga 2026

"*" indicates required fields

Nafn*