Styrkur okkar er velferð allra
Byggiðn skorar á félagsfólk að taka þátt í kröfugöngu og útifundi vinnandi stétta á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er Styrkur okkar er velferð allra.
Venju samkvæmt verður dagskrá út um allt land. Í Reykjavík safnast fjöldinn saman á Skólavörðuholti klukkan 13:00. Gangan hefst klukkan 13:30. Útifundur hefst á Ingólfstorgi klukkan 14:00.
Á Akureyri safnast göngufólk saman við Alþýðuhúsið klukkan 13:45 en gangan niður að Ráðhústorgi hefst klukkan 14:00.
Byggiðn býður félagsmönnum og fjölskyldum þeirra í kaffi á Stórhöfða 31 að dagskrá lokinni. Húsið verður opnað klukkan 14. Athugið að gengið er inn Grafarvogsmegin.
