Reikniregla yfirvinnu

Kjarabreytingar 2024

Breytingar á kjörum 1. janúar 2024 – samkvæmt kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins

  • Öll dagvinnulaun hækka um a.m.k. kr. 23.750. kr.
  • Lágmarkslaun sveina verða kr. 572.079,- hjá RSÍ, Samiðn, VM og FHS.
  • Kauptaxtar hækka sérstaklega í samræmi við kjarasamninga. Þeir eru breytilegir eftir kjarasamningum.

Launabreytingar á samningstímanum

Laun taka hlutfallshækkun, með krónutöluhækkun að lágmarki,
nema annað leiði af launatöflum sem fylgja kjarasamningi
þessum. Með mánaðarlaunum er átt við föst mánaðarlaun fyrir
dagvinnu.

  • febrúar 2024: 3,25% eða 23.750 kr.
  • janúar 2025: 3,50% eða 23.750 kr.
  • janúar 2026: 3,50% eða 23.750 kr.
  • janúar 2027: 3,50% eða 23.750 kr.

Breyting á yfirvinnuálagi

Frá og með 1. Janúar 2025 er virkur vinnutími samkvæmt kjarasamningi 36 klst. að meðaltali á viku og deilitala dagvinnutímakaups 156. Yfirvinna 2 greiðist fyrir virkan vinnutíma
umfram 39,5 klst. á viku að meðaltali á launatímabili / mánuði (171,17 virkar klst. m.v.
meðalmánuð).

Yfirvinna 1 er greidd fyrir fyrstu 3,5 klst á viku að jafnaði eða 15,17 klst á mánuði. Álag á yfirvinnu 1 verður 1 % af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Yfirvinna 2 er greidd umfram það. Yfirvinna 2 greiðist fyrir alla tíma umfram 39,5 tíma á viku að jafnaði eða yfir 15,17 yfirvinnutíma á mánuði og á nóttunni á milli kl. 00:00-06:00. Álag á yfirvinnu 2 verður 1,15% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Mánaðarlaun (dæmi 1)ÁlagTímakaup yfirvinnu
   
533.750 kr.1,00%5.338 kr. eftir breytingu
Mánaðarlaun (dæmi 2)ÁlagTímakaup yfirvinnu
   
533.750 kr. 1,15%6.138 kr. eftir breytingu


Breytingar á orlofi

Starfsmaður sem unnið hefur í 3 ár í sama fyrirtæki eða 5 ár í sömu starfsgrein á rétt á orlofi í 28 virka daga og orlofslaunum sem nema 12,07%
Starfsmaður sem unnið hefur í 5 ár í sama fyrirtæki á rétt orlofi í 30 virka daga og orlofslaunum sem nema 13,04%.
Hækkun orlofs tekur gildi 1. maí 2025 þannig að hærri orlofsprósenta er greidd frá þeim tíma. Aukið orlof
kemur þannig til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2026.

ATH: Þeir sem eiga ríkari rétt skv. kjarasamningum halda að sjálfsögðu þeim rétti áfram.