Ráðherra kemur á fund Byggiðnar
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur boðað komu sína á fund eldri félaga Byggiðnar, sem fram fer á fimmtudaginn, 2. október 2025. Fundurinn hefst klukkan 14:00. Ingu var boðið til fundarins til að ræða húsnæðismál og málefni lífeyrisþega.
Eldri félagar funda að jafnaði fyrsta fimmtudag í hverju mánuði. Fólk sem náð hefur lífeyrisaldri er hvatt til að mæta. Fundað er á Stórhöfða 31. Gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin.
