Greinar
PubQuiz og bjórkvöld með ASÍ-UNG

PubQuiz og bjórkvöld með ASÍ-UNG

Við hvetjum félagsfólk Byggiðnar á aldrinum 35 ára og yngri að mæta og eiga skemmtilegt kvöld með öðru ungu fólki innan verkalýðshreyfingarinnar á viðburði á vegum ASÍ-UNG næstkomandi föstudag.

ASÍ-UNG býður félagsfólki á aldrinum 35 ára og yngri til skemmtilegs kvölds á Akureyri föstudaginn 21. ágúst. Viðburðurinn fer fram á Múlabergi frá kl. 20:00–00:00.

Á dagskrá verður PubQuiz, góður félagsskapur og létt stemning. Bjór verður í boði á krana á meðan birgðir endast og þátttakendur fá 15% afslátt á barnum.