Greinar
Orlofsuppbótin greiðist 1. júní

Orlofsuppbótin greiðist 1. júní

Orlofsuppbót verður greidd 1. júní næstkomandi. Orlofsuppbótin fyrir orlofsárið 1.maí 2025 til 30. apríl 2026 er 62.000 krónur á almennum markaði. Launafólk á að geta séð uppbótina í næsta launaseðli.

Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllu starfsfólki sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí.

Orlofsuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingumskv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.