Opnað fyrir vetrarbókanir orlofshúsa 2. nóvember
Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum og íbúðum Byggiðnar mánudaginn 2. nóvember kl. 12 á hádegi. Bókunartímabilið nær frá 4. janúar til 4. júní 2027.
Félagsfólk getur þá tryggt sér dvöl yfir veturinn og vorið á orlofsvef Byggiðnar. Athugið að Flókalundur verður ekki í boði á tímabilinu.
Við vetrarbókanir gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Engir punktar eru dregnir frá vegna dvalar utan páska. Helgarleiga er frá kl. 16 á föstudegi til kl. 12 á mánudegi og hægt er að bæta virkum dögum við dvölina.
Um páskana verða húsin leigð í heila viku, frá miðvikudegi til miðvikudags. Páskavikan verður einnig bókuð samkvæmt reglunni fyrstur kemur, fyrstur fær, en vegna hennar verða dregnir frá 26 punktar.
Við minnum á að sjúkraíbúð félagsins í Sóltúni 28 er sýnileg í bókunarkerfinu en bókanir á henni fara eingöngu fram í gegn um skrifstofu Byggiðnar.
Félagsfólk er hvatt til að kynna sér framboðið og leigureglurnar fyrir opnun. Skrifstofa Byggiðnar veitir aðstoð og frekari upplýsingar í síma 547 0300.
