Greinar
Opnað fyrir bókanir orlofshúsa

Opnað fyrir bókanir orlofshúsa

Föstudaginn 1. nóvember verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús vorið 2025. Þá verður opnað fyrir leigu frá 3. janúar til 30. maí.

Opnað verður klukkan 13:00. Athugið að reglan – fyrstur kemur, fyrstur fær – gildir um þetta tímabil.

Sérstök athygli er vakin á því að opnað verður á sama tíma fyrir leigu á nýju húsi félagsins að Huldulandi 1 í Hálöndum, ofan Akureyrar. Hægt verður að bóka það frá 1. nóvember til 30. maí.

Hér má sjá upplýsingar um húsið og myndir.