Greinar
Afmælisgjöf: Ókeypis námskeið á 20 ára afmæli Iðunnar

Afmælisgjöf: Ókeypis námskeið á 20 ára afmæli Iðunnar

Iðan fræðslusetur fagnar 20 ára afmæli sínu um þessar mundir undir yfirskriftinni „Þróun og þekking í 20 ár“. Á þessum tíma hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt og aðlagast þörfum iðnaðarins og hraðri tækniþróun.

Á síðasta ári voru um 500 námskeið í boði og sóttu þau tæplega 5.000 manns, sem sýnir hversu mikil þörf er fyrir símenntun í iðngreinum.

Í tilefni af afmælinu fær félagsfólk Iðunnar frítt vefnámskeið að eigin vali, sem er ætlað að styðja við áframhaldandi þekkingaröflun og færniþróun.

Á meðal þeirra námskeiða sem félagsfólk getur valið um eru:

  • Steinsteypa – frá hráefni til byggingar
  • Mannvirki í görðum
  • Heildstæð rör í rör kerfi
  • Eigin úttektir í byggingaframkvæmdum
  • Múrdæla – notkun og þrif

Í kynningarbæklingi frá Iðunni er bent á að símenntun sé lykilþáttur í að tryggja hæfni og samkeppnishæfni í iðnaði og Iðan muni halda áfram að þróa fræðslu sem mætir þörfum framtíðarinnar.

ATH. Þegar námskeið er valið fá félagsmenn upp gjafabréf sem nota má sem greiðslu.

Meðfylgjandi mynd er frá nýlegri afhendingu Iðunnar á sveinsbréfum í Hofi á Akureyri.