Greinar
Nýsveinar úr Byggiðn verðlaunaðir í fjölmennri athöfn

Nýsveinar úr Byggiðn verðlaunaðir í fjölmennri athöfn

Ein fjölmennasta útskrift nýsveina sem haldin hefur verið fór fram á Hótel Nordica þriðjudaginn 16. september. Þar fengu 244 sveinsbréf sín afhent við hátíðlega athöfn. Iðan fræðslusetur stendur að þessum athöfnum. 600 manns voru viðstaddir athöfnina.

Fjölmennasti hópurinn voru húsasmiðir en 105 fengu sveinsbréf í húsasmíði. Píparar voru 55 og húsgagnasmiðir sjö. Athygli vekur að sex fengu sveinsbréf í veggfóðrun og dúkalögn en kunnuga rekur ekki minni til að þeir hafi verið jafn fjölmennir í einni útskrift áður.

Formaður Byggiðnar afhenti fjölmörgum félagsmönnum sveinsbréfin sín á þriðjudag. Auk þess afhenti formaður þeim sem fram úr sköruðu verðlaun í félagi við Meistarfélag húsasmiða. Van Huy Nguyen úr Byggiðn varð efstur í húsgagnasmíði, Andrea Sól Svavarsdóttir úr Byggiðn skaraði fram úr í veggfóðrun og dúkalögn en Hans Haraldsson úr Byggiðn og Jakob Hinriksson úr FIT urðu efstir í húsasmíði.

Byggiðn óskar öllum nýsveinum til hamingju með þennan merka áfanga.

Meðfylgjandi myndir tók Rúnar Hreinsson af athöfninni. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.