
Nýr og glæsilegur orlofsvefur í loftið
Byggiðn hefur tekið í notkun nýjan og glæsilegan orlofsvef. Unnið hefur verið að þróun vefsins um árabil en óhætt er að segja að í honum felist bylting í notendaviðmóti fyrir félagsfólk.
Við hönnun vefsins var sérstök áhersla lögð á að hann væri notendavænn fyrir allar tegundir snjalltækja.
Hér má sjá ítarlegar leiðbeiningar um hvernig bóka á hús á nýjum orlofsvef.
Hér eru svo leiðbeiningar á ensku (ENGLISH INSTRUCTIONS)
Ekki hika við að hafa samband við skrifstofu félagsins ef ykkur rekur í vörðurnar næst þegar þið bókið hús.