Greinar
Minning

Minning

Í dag er borinn til grafar á Akureyri góður drengur, Heimir Þorleifur Kristinsson, varaformaður Byggiðnar – félags byggingamanna.

Heimir hefur verið varaformaður félagsins frá 2008, eða síðan ákveðið var að sameina Trésmiðafélag Reykjavíkur og Félag byggingamanna í Eyjafirði, þar sem hann var áður formaður. Hann gegndi lykilhlutverki í þeirri sameiningu, sem varð árið 2008. Sú ráðstöfun sýndi að mínu mati hugrekki og bar vott um framtíðarsýn þeirra sem að henni komu. 

Heimir sá um skrifstofu Byggiðnar í Alþýðuhúsinu á Akureyri og sinnti þar daglegri þjónustu við félagsmenn á starfssvæði félagsins á Norðurlandi, allt til hinsta dags.

Heimir Kristinsson starfsmenn

Samhliða hlutverki sínu og störfum fyrir Byggiðn, sat Heimir í fjölda ára í framkvæmdastjórn Samiðnar – landssambands iðnaðarmanna á Íslandi. Hann var fulltrúi Byggiðnar í Alþýðusambandi Norðurlands og í norrænu sambandi iðnaðarmanna. Heimir var fulltrúi Byggiðnar hjá Stapa lífeyrissjóði og sinnti auk þess fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir félagið.

Menntamál voru Heimi sérstaklega hugleikin. Þannig var hann hvatamaður að námskeiðahaldi á Norðurlandi í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur, ræktaði gott samstarf við Verkmenntaskólann á Akureyri, kom að stofnun Iðnaðarsafnsins á Akureyri og sat þar í stjórn, svo fátt eitt sé nefnt.

Ég kynntist Heimi betur þegar ég tók við embætti formanns félagsins fyrir rúmum tveimur árum en árið á undan höfðum við setið saman í stjórn félagsins. Heimir hafði mikla þekkingu á kjara-,mennta- og réttindamálum iðnaðarmanna og maður kom sjaldan að tómum kofanum hjá honum í þeim efnum.

Heimir var viðræðugóður og hjálpsamur og reyndi alltaf að vinna að lausnum fyrir félagsmenn Byggiðnar. Hann hafði skilning á því ekki væri hægt að skrifa reglur og/eða lög um alla hluti og var alltaf til í að finna skynsamlegar lausnir. Þessir eiginleikar hans nýttust honum vel í starfi.

Heimir var góður liðsmaður. Hann stóð fastur á sínum skoðunum, lét þær óhikað í ljós, og fylgdi þeim eftir. Þótt ágreiningur hafi verið um mál og skiptar skoðanir, þá náði það aldrei út fyrir samtalið eða fundinn, hann fór í boltann, aldrei manninn.

Það hefur verið bæði sorglegt og aðdáunarvert að fylgjast með Heimi í þeim erfiðu veikindum sem hann átti við að stríða síðastliðin ár. Frá mínum bæjardyrum séð tók hann þessum veikindum af miklu æðruleysi. Hann var alltaf á vaktinni og tók á þeim verkefnum sem sinna þurfti. Hann var allt til hinsta dags að athuga hvort hann gæti lagt málum lið.

Með fráfalli Heimis fer mikil og verðmæt þekking sem hann hefur aflað sér í óeigingjörnu starfi innan verklýðshreyfingarinnar.

Ég vil fyrir hönd Byggiðnar – félags byggingamanna, senda fjölskyldu, vinum og öðrum aðstandendum Heimis, innilegar samúðarkveðjur.

Megi minning um góðan dreng lifa.

Jón Bjarni Jónsson,
formaður Byggiðnar – félags byggingamanna