Greinar
Mikilvæg könnun um kjara- og réttindamál

Mikilvæg könnun um kjara- og réttindamál

Byggiðn leggur nú fyrir félagsfólk stutta könnun um stöðuna í byggingariðnaði, kjara- og atvinnumál og viðhorf til ýmissa mála sem snerta greinina. Meðal annars er spurt um verkefnastöðu, starfsöryggi, fagmennsku og áhrif réttindalausra starfsmanna, auk afstöðu félagsfólks til stöðu kjarasamninga.

Markmiðið er að fá skýrari mynd af stöðu og viðhorfum félagsfólks og nýta niðurstöðurnar í starfi félagsins og hagsmunagæslu. Könnunin tekur aðeins örfáar mínútur og er nafnlaus og órekjanleg.

Við hvetjum allt félagsfólk til að taka þátt – því meiri sem þátttakan er, því skýrari verður rödd félagsfólks.

Tveir heppnir þátttakendur verða dregnir út og munu fyrir þátttökuna vinna helgarleigu í orlofshúsum félagsins þeim að kostnaðarlausu.