Greinar
Lokaársnemar heimsóttir í VMA

Lokaársnemar heimsóttir í VMA

Byggiðn er um þessar mundir að heimsækja lokaársnema í smíði, pípulögnum og múrverki í Verkmenntaskólanum á Akureyri til að kynna starf félagsins og ræða mikilvægi stéttarfélaga. Sigmundur Kristberg Magnússon, verkefnastjóri orlofs- og kjaramála hjá Byggiðn, hefur þegar hitt smíða- og pípulagnanema og er heimsókn til múraranema fram undan.

Nemarnir eru að vinna að sveinsstykkjum sínum og stefna á sveinspróf í janúar. Í heimsóknunum hefur gefist gott tækifæri til að ræða hlutverk stéttarfélaga og hvernig Byggiðn getur stutt við félagsfólk á komandi starfsárum.

Einnig var litið við hjá nemendum á öðru ári sem taka þátt í byggingu leiguhúsa fyrir tjaldsvæðið á Hömrum.

Heimsóknirnar eru mikilvæg leið til að efla tengsl Byggiðnar við verðandi iðnaðarfólk fyrir norðan og kynna stuðninginn sem stendur því til boða. Þær hafa þegar skilað nokkrum nýjum félagsmönnum.

Meðfylgjandi mynd er úr safni.