Greinar
Lausar vikur í orlofshúsum

Lausar vikur í orlofshúsum

Athygli er vakin á því að enn má finna lausar vikur í orlofshúsum félagsins í sumar. Húsið í Brautarholti (Blönduósi) er laust vikuna 23.–30. júlí og íbúðin í Sóltúni í Reykjavík frá 31. júlí til 7. ágúst. Brautarholt er jafnframt laust vikurnar 7. ágúst til 13. og svo áfram til 21. ágúst. Frá 21. ágúst er svo víða laust í húsum félagsins.

Einnig er minnt á að hægt er að bóka Skemmuna, samkomuhús félagsins á Stóra-Hofi, fyrir ýmsa viðburði.

Meðfylgjandi mynd er tekin í húsi félagsins í Brautarholti, Blönduósi.