Greinar
Kaffihittingur eldri félaga: Erindi um sögu holdsveikraspítalans

Kaffihittingur eldri félaga: Erindi um sögu holdsveikraspítalans

Guðmundur Þórhallsson, fyrrverandi kennslustjóri og framhaldsskólakennari, verður gestur á næsta kaffihittingi eldri félagsmanna Byggiðnar, fimmtudaginn 5. nóvember klukkan 14.

Guðmundur flytur erindi um sögu holdsveikraspítalans í Laugarnesi á árunum 1898–1943.

Kaffihittingurinn verður haldinn að Stórhöfða 31. Gengið er inn Grafarvogsmegin.

Eldri félagsmenn eru hvattir til að mæta og njóta fróðleiks og samveru yfir kaffibolla.