Greinar
Kaffi eldri félaga 1. október – saga hernámsáranna

Kaffi eldri félaga 1. október – saga hernámsáranna

Byggiðn býður eldri félagsmönnum til kaffisamsætis fimmtudaginn 1. október kl. 14:00 að Stórhöfða 31.

Leifur Reynisson sagnfræðingur verður gestur dagsins og leiðir gesti í gegnum sögu hernámsáranna í máli og myndum, með sérstakri áherslu á æskulýðinn. Fjallað verður meðal annars um hvernig ungt fólk upplifði hernámsárin, samskipti þess við herinn og þau samfélagslegu áhrif sem hernámið hafði. Þá verður sagt frá því hvernig unglingamenning skaut rótum í umróti stríðsáranna.

Frásögn Leifs byggir á nýútkominni bók hans, Hernámsæskan, sem verður til sölu á staðnum á tilboðsverðinu 7.000 krónur.

Eldri félagsmenn eru hvattir til að mæta og eiga saman ánægjulega stund yfir kaffibolla.