Jónsmessuhátíð 27. – 29. júní
Hin árlega Jónsmessuhátíð félagsins verður haldin helgina 27.-29. júní á jörðinni Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi. Dagskrá verður allan laugardaginn fyrir fjölskylduna. Í boði verður meðal annars barnasmiðja, frisbígolf, bingóganga, brekkusöngur og dansleikur. Lögð er áhersla á fjölskylduvæna skemmtun og útilegu þar sem allir geta tekið þátt.
Næg tjaldstæði eru á Stóra-Hofi og frábær aðstaða til útilegu; nýlegt þjónustuhús og gott samkomuhús. Stóra-Hof er staðsett skammt frá Árnesi í Þjórsárdal, í um 100 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.
