Jón Bjarni á RÚV: „Augljós samdráttur í gangi“
Jón Bjarni Jónsson formaður Byggiðnar var í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi, 24. nóvember, þar sem fjallað var um óvissu á fasteignamarkaði. Óvissa ríkir eftir að bankar hertu lánaskilmála í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða.
Í fréttinni kom fram að þetta hefði þegar valdið samdrætti í byggingargeiranum og áhrifin væru farin að sjást víða. „Í nýbyggingamarkaðnum þá er augljós samdráttur í gangi og við erum að sjá fyrirtæki sem eru að draga verulega saman starfsemi sína, og sum jafnvel að loka. Ég sé mikið af minni verktökum sem hafa bara ekki fjármagn til þess að halda áfram, og eru bara hreinlega bara að loka sínum byggingum og segja upp mannskap,“ sagði formaðurinn í fréttinni.
Hann sagði enn fremur að það væri sorglegt að fyrirtæki væru að velja þann kost að loka byggingum vegna óvissu um sölu og fjármagn og að engin augljós lausn væri í sjónmáli. Hann benti einnig á að viðmið Seðlabankans um hlutfall ráðstöfunartekna til íbúðakaupa væru mjög óhagstæð í þeirri stöðu sem nú væri uppi.
Jón Bjarni fagnaði þó því í fréttinni að stærri byggingarverktakar hefðu kynnt nýjar leiðir til að auðvelda kaupendum að komast inn á markaðinn, og taldi jákvætt að gripið væri til úrræða til að koma söluferlinu af stað á erfiðum tímum.
