Fjöldi réttindalausra ávísun á byggingagalla
Einungis einn af hverjum fjórum sem störfuðu við húsbyggingar reyndust vera með iðnmenntun. Þetta sýnir eftirlit Byggiðnar sem gert var í síðasta mánuði. Formaður Byggiðnar segir reyndu og menntuðu fólki skipt út fyrir ómenntað.
Svona hljóðar inngangur í frétt RÚV sem fjallar um ástandið í byggingariðnaði. Í fyrstu frétt í kvöldfréttatíma sjónvarps í gærkvöldi var rætt við Jón Bjarna Jónsson, formann félagsins. Þar kom fram að atvinnuleysi í greininni væri að aukast. Eftir því sem réttindalausum starfsmönnum fjölgi megi búast við tíðari byggingagöllum.
„Það sem við verðum mest vör við eru uppsagnir á okkar félagsmönnum sem eru menntaðir. Þróunin virðist vera þannig að það er verið að segja upp mönnum með lögbundin réttindi og það er frekar verið að fara út í að ráða undirverktaka á byggingarstaðinn,“ sagði Jón Bjarni í viðtalinu.
Í fréttinni var sagt frá eftirlitsferðum Samiðnar og ASÍ á nokkra byggingastaði, sem farið var í fyrir skemmstu. Þar var hlutfall faglærðra starfsmanna kannað. „Á byggingarstöðum sem við fórum á í júní voru 24% með iðnréttindi,“ segir Jón Bjarni í fréttinni. „4% eru skráðir nemar og 72% skráðir án iðnréttinda. Það er alveg klárt, þessi samsetning, hvernig byggingavinnustaðir eru mannaðir, hefur áhrif á galla í byggingum.“
RÚV hefur fjallað um málið í fleiri fréttum.
