Greinar
Heimir er fallinn frá

Heimir er fallinn frá

Heimir Kristinsson, varaformaður Byggiðnar og starfsmaður félagsins á Akureyri um langt árabil, er látinn, 57 ára að aldri. Heimir lést á heimili sínu mánudaginn 7. júlí, eftir baráttu við erfið veikindi.

Stjórn og starfsfólk Byggiðnar syrgir góðan samstarfsfélaga og sendir fjölskyldu og vinum Heimis innilegar samúðarkveðjur.

Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 23. júlí, klukkan 13:00.

Meðfylgjandi mynd af Heimi var tekin á Skógarmelum í Fnjóskadal, sumarið 2019.