Gjaldþrot atvinnurekanda

Hvaða réttindi getur launakrafa tekið til?

Ef fyrirtæki sem þú starfar hjá verður gjaldþrota getur þú átt rétt á bótakröfu vegna launa og annarra áunninna réttinda.

Slík krafa getur meðal annars tekið til:

  • Launa á uppsagnarfresti.
  • Áunnins orlofs.
  • Orlofsuppbótar.
  • Desemberuppbótar.
  • Annarra launatengdra réttinda samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi.
Aðstoð frá Byggiðn

Félagsmenn Byggiðnar geta leitað til félagsins vegna gjaldþrots atvinnurekanda.

Starfsfólk félagsins aðstoðar við að meta réttindi og útbúa launakröfu sem send er til skiptastjóra þrotabúsins.

Athugið: Mikilvægt er að hafa samband við Byggiðn eins fljótt og auðið er eftir að ljóst er að fyrirtækið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Gögn sem gott er að hafa með

Til að hægt sé að vinna kröfuna sem best er æskilegt að hafa eftirfarandi gögn tiltæk:

  • Ráðningarsamning, ef hann er til.
  • Uppsagnarbréf, ef það á við.
  • Launaseðla, að lágmarki síðustu sex mánuði.
  • Önnur gögn sem kunna að skipta máli, svo sem tímaskráningar eða önnur launagögn.
Hvernig fer ferlið fram?

Við gjaldþrot fyrirtækis skipar héraðsdómur skiptastjóra sem lýsir eftir kröfum í þrotabúinu með auglýsingu í Lögbirtingablaðinu.

Kröfulýsingarfrestur er almennt tveir mánuðir frá birtingu auglýsingarinnar.

Nauðsynlegt er að launakrafa berist innan þess frests og því er mikilvægt að hafa samband við Byggiðn tímanlega svo unnt sé að undirbúa og senda kröfuna.

Athugið: Launakröfur sem eru eldri en 18 mánaða frá frestdegi njóta almennt ekki forgangsréttar við gjaldþrotaskipti og falla því jafnframt utan ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.

Ábyrgðasjóður launa

Launakröfur starfsmanna eru forgangskröfur við gjaldþrot fyrirtækja.

Ef ekki eru nægar eignir í þrotabúinu til að greiða þær getur Ábyrgðasjóður launa greitt þær samkvæmt lögum um sjóðinn.

Ábyrgðasjóður launa getur meðal annars greitt:

  • Laun á uppsagnarfresti innan þeirra marka sem lög kveða á um.
  • Áunnið orlof.
  • Orlofsuppbót og desemberuppbót samkvæmt lögbundnum skilyrðum.
  • Lögbundin lífeyrisiðgjöld og, eftir atvikum, allt að 2% mótframlag í séreignarsparnað.

Greiðslur úr sjóðnum eru háðar því að krafan hafi verið viðurkennd sem forgangskrafa samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti.

Skráning hjá Vinnumálastofnun

Missir þú starf þitt vegna gjaldþrots atvinnurekanda er mikilvægt að skrá þig atvinnulausan hjá Vinnumálastofnun án tafar.

Slík skráning er meðal annars skilyrði fyrir því að Ábyrgðasjóður launa geti greitt bætur vegna óunnins uppsagnarfrests.

Atvinnuleysisbætur og aðrar greiðslur sem þú færð á sama tímabili geta komið til frádráttar launakröfu vegna uppsagnarfrests.


Þarftu aðstoð?

Ef fyrirtæki sem þú starfar hjá hefur orðið gjaldþrota eða þú ert óviss um rétt þinn skaltu hafa samband við Byggiðn.
Starfsfólk félagsins getur farið yfir réttindi þín, aðstoðað við gerð launakröfu og leiðbeint þér um næstu skref.