Fyrsta skóflustungan tekin á Stóra-Hofi
Það var Grétar Þorsteinsson, fyrrverandi formaður félagsins og forseti ASÍ, sem tók fyrstu skóflustunguna að nýju orlofshúsi félagsins á jörðinni Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi skömmu fyrir jól. Með í för voru nokkrir félagar sem gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið.
Fyrir á Byggiðn tvö orlofshús á jörðinni en það þriðja verður kærkomin viðbót. Um verður að ræða 114 fermetra hús með 15 fermetra útihúsi. Þrjú svefnherbergi verða í húsinu. Áætlað er að byggingu hússins verði lokið næsta sumar.
Fréttir verða fluttar af framgangi verksins eftir því sem við á.
Eins og sést á meðfylgjandi myndum var viðburðurinn rækilega festur á filmu.






