Greinar
Fundabókanir á vefnum

Fundabókanir á vefnum

Byggiðn hefur nú opnað fyrir þann valmöguleika hér á vefnum að félagsfólk geti bókað tíma hjá starfsmanni félagsins. Hnappur er nú á áberandi stað á forsíðunni, fyrir neðan efstu frétt.

Félagsmaður getur þar valið dagsetningu og tíma dagsins. Auk þess þarf að gefa upp örstutta lýsingu á erindinu, svo hægt sé að meta hver er best til þess fallinn að hitta viðkomandi félaga.

Byggiðn hvetur sem félagsfólk sem fyrr til að hafa samband og bóka fund ef eitthvað brennur á þeim sem sem tengist kjaramálum, styrkjum eða annarri þjónustu sem félagið veitir. Við erum alltaf til í spjall.

Bóka fund hér