Greinar
Framboðsfrestur til stjórnar og trúnaðarstarfa

Framboðsfrestur til stjórnar og trúnaðarstarfa

Félagsmenn hafa möguleika á að bjóða sig fram til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa innan félagsins, samkvæmt ákvæðum laga félagsins. Einstökum félagsmönnum er heimilt að gera tillögur um menn í einstakar stöður til 15. febrúar.

Slíkum tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem í kjöri eru, auk meðmæla fimmtíu félagsmanna. Til þess að tillaga teljist gild þurfa bæði þeir sem lagðir eru til og meðmælendur þeirra að vera fullgildir félagar. Ekki er heimilt að setja á tillögu nöfn þeirra sem hafa þegar veitt skriflegt leyfi til að vera á annarri tillögu.

Helmingur stjórnar er kjörinn á aðalfundi félagsins ár hvert. Trúnaðarmannaráð, varamenn þess, endurskoðendur og varamenn þeirra eru einnig kosnir á aðalfundi, komi til kosninga.