Flestir ánægðir í starfi og sterk áhersla á iðnréttindi
Rúmlega þrír af hverjum fjórum svarendum í viðhorfskönnun Byggiðnar eru ánægðir á vinnustaðnum sínum og meirihlutinn sér fyrir sér að starfa við fagið út starfsferilinn. Niðurstöðurnar sýna jafnframt mikla áherslu á fagmennsku og iðnréttindi. Þótt verkefnastaðan sé almennt góð segjast tæplega 30% svarenda vinna hjá fyrirtæki sem hefur sagt upp starfsfólki vegna samdráttar síðastliðið ár.
Könnunin var lögð fyrir í september og október 2026. Þar var meðal annars spurt um starfsánægju, verkefnastöðu, fagmennsku, uppsagnir og reynslu af þjónustu félagsins. 330 félagar svöruðu könnuninni.
Alls segjast 76,1% vera mjög eða frekar ánægð á vinnustaðnum sínum. Þar af eru 34,8% mjög ánægð og 41,3% frekar ánægð. Óánægðir eru 5,8% en 12,2% taka ekki afstöðu til eða frá. Þá sjá 71,4% fyrir sér að starfa við fagið út starfsferilinn, en 11,9% svara þeirri spurningu neitandi.
Verkefnastaðan er einnig góð að mati meirihluta svarenda. Samtals telja 67,8% hana mjög eða frekar góða hjá sér eða vinnuveitanda sínum. Þar af segja 25,2% hana mjög góða. Á móti meta 11,7% verkefnastöðuna frekar eða mjög slæma.
Samhliða þessari almennt jákvæðu mynd segjast 29,9% svarenda vinna hjá fyrirtæki sem hefur sagt upp starfsfólki vegna samdráttar undanfarna tólf mánuði. Rúmur helmingur, 56,1%, segir svo ekki vera. Af þeim sem greina frá uppsögnum segja 55,7% að iðnmenntuðu fólki hafi verið sagt upp. Önnur 27,8% segja að uppsagnirnar hafi eingöngu náð til ófaglærðs starfsfólks.
Áhersla á fagmennsku er áberandi í svörunum. Alls segja 81,3% að stjórnendur á sínum vinnustað leggi mikla áherslu á fagmennsku í vinnubrögðum, þar af segir rúmur helmingur áhersluna mjög mikla. Aðeins 6% telja hana litla. Jafnframt telja 80,5% svarenda að aðkoma starfsfólks án iðnréttinda hafi mikil áhrif á tíðni galla í nýbyggingum. Þar af telja 47,3% áhrifin mjög mikil og 33,2% frekar mikil.
Áherslan á fagmennsku kemur einnig fram í opnum svörum. Þar er kallað eftir skýrari kröfum um iðnréttindi og öflugra eftirliti með störfum sem krefjast fagmenntunar. Samhliða benda aðrir á skort á faglærðu fólki og mikilvægi þess að reynsla þeirra sem ekki hafa lokið námi sé metin. Þá koma fram óskir um skýrara byggingareftirlit, einfaldari reglur og skýrari ábyrgð þeirra sem koma að framkvæmdum. Þess má geta að Byggiðn hefur stóreflt vinnustaðaeftirlit á byggingastöðum að undanförnu.
Reynsla af þjónustu Byggiðnar er almennt góð. Samtals hafa 57,7% svarenda leitað til félagsins vegna styrkja, kjaramála eða hvort tveggja á síðustu þremur árum. Af þeim eru 82,7% mjög eða frekar ánægð með þjónustuna eða svörin sem þau fengu. Óánægðir eru 8,6%.
Ýmsar gagnlegar ábendingar
Í opinni spurningu í lok könnunarinnar bárust rúmlega 50 athugasemdir. Þar kennir ýmissa grasa. Nokkrir hrósa starfsfólki félagsins og þakka fyrir góðan stuðning en aðrir óska eftir betri svörun, upplýsingagjöf og eftirfylgni mála. Einnig er kallað eftir fleiri félagsfundum og virkari aðstoð í samskiptum við atvinnurekendur.
Í athugasemdunum var kallað eftir betri eftirfylgni með nemum og meisturum, nútímalegra iðnnámi, hærri námsstyrkjum og námskeiðum á ensku. Þá koma fram óskir um aukinn stuðning við atvinnumissi eða skerta starfsgetu, rýmri sálfræðistyrki og fjölbreyttara framboð orlofshúsa. Í athugasemdunum er jafnframt lýst löngum og líkamlega erfiðum vinnudögum og áhyggjum af álagi og kulnun.
Byggiðn þakkar félagsfólki fyrir þátttökuna og þær fjölmörgu ábendingar sem bárust. Svörin veita mikilvæga innsýn í stöðu og viðhorf félagsfólks og hjálpa félaginu að sjá hvað gengur vel og hvar má gera betur. Félagið tekur ábendingunum opnum örmum og mun nýta þær til að þróa þjónustuna og móta áherslur í starfinu.
Í vikunni verður haft samband við þá heppnu þátttakendur sem hlutu dvöl í orlofshúsum félagsins í útdrætti meðal svarenda könnunarinnar.


