Félagsfundur 10. desember – erindi um galla í nýbyggingum
Félagsfundur Byggiðnar verður haldinn miðvikudaginn 10. desember kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn samtímis á Stórhöfða 31 í Reykjavík og á Skipagötu 14 á Akureyri.
Dagskrá fundar
- Gallar í nýbyggðum fjölbýlishúsum. Stefán Hrafn Jónsson, prófessor við félagsfræðideild Háskóla Íslands, fer yfir rannsókn um galla í fjölbýlishúsum, sem hann vann ásamt fjórum öðrum fræðimönnum úr mismunandi deildum HÍ, og Breka Karlssyni hjá Neytendasamtökunum.
- Niðurstöður kjara- og þjónustukönnunar Byggiðnar kynntar.
- Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt. Boðið verður upp á veitingar.
Sjá einnig: Upplifun félagsmanna Byggiðnar af réttindalausu starfsfólki í byggingariðnaði
