Greinar
Einhugur um framlengingu kjarasamnings

Einhugur um framlengingu kjarasamnings

Stjórn Byggiðnar og trúnaðarráð félagsins hafa á fundum sínum í vikunni fjallað um stöðu kjarasamninga og það samkomulag sem nú liggur fyrir um áframhald þeirra. Alger einhugur var á báðum fundum um að ganga frá samkomulaginu og tryggja þannig áframhald kjarasamningsins.

Meginmarkmið samninganna er sem fyrr að ná niður verðbólgu og skapa forsendur fyrir lækkun vaxta. Þróun verðbólgu hefur verið verri en gert var ráð fyrir þegar langtímakjarasamningar voru gerðir árið 2024 og verðbólga hefur verið yfir þeim forsendum sem lagt var upp með.

Í samkomulaginu er jafnframt brugðist við ýmsum þeim þáttum sem hafa þrengt að heimilum og grafið undan markmiðum kjarasamninganna, meðal annars með áherslu á aðhald í gjaldskrárhækkunum.

Samkomulagið snýr meðal annars að:

  • réttindum launafólks,
  • stuðningi við barnafjölskyldur,
  • auknu húsnæðisöryggi,
  • aðhaldi í gjaldskrárhækkunum.

Stjórn og Trúnaðarráð Byggiðnar telja mikilvægt að áfram verði unnið að því meginmarkmiði kjarasamninganna að skapa meiri stöðugleika í efnahagslífinu, draga úr verðbólgu og stuðla að lægri vöxtum til hagsbóta fyrir félagsfólk og heimilin í landinu.