Desemberuppbót 2025
Desemberuppbót skal greiða í desember, í síðasta lagi 15. desember. Algengast er að uppbótin sé greidd út samhliða greiðslu launa fyrir nóvembermánuð.
Uppbótin á almennum vinnumarkaði er kr. 110.000 árið 2025 en óheimilt er að greiða lægri upphæð í desemberuppbót fyrir fullt starf.
Félagsfólk er hvatt til að fylgjast með því að desemberuppbótin sé rétt greidd út miðað við kjarasamning. Full uppbót greiðist fyrir fullt ársstarf sem telst 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Starfsmaður sem hefur unnið í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum samkvæmt almenna kjarasamningnum fær greiddar kr 29.333 (12/45*110.000=29.333 kr.).
