Greinar
Dagskrá Jónsmessuhátíðar

Dagskrá Jónsmessuhátíðar

Jónsmessuhátíð fer fram á jörðinni Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi um helgina, 26.-28. júní. Á svæðinu er glæsilegt tjaldsvæði og þjónustuhús þar sem vel getur farið um alla.

Dagskrá hátíðarinnar liggur fyrir og er hún sem hér segir:

Föstudagur

  • Kl. 20.30 Línudans í Skemmunni
  • Spilað verður Pöbbkviss í skemmunni eftir línudansinn

Laugardagur

  • Kl. 10:00 -12:00 Barnasmiðja í Skemmunni Hoppuakstali við Skemmuna.
  • Kl. 14:30-15:00 Bingoganga frá þjónustuhúsinu á tjaldssvæðinu í kaffi. Vegleg verðlaun í boði!
  • Kl. 15:00-16:30 Kaffi í Skemmunni í boði Byggiðnar.
  • Kl. 20:30 -21:30 Varðeldur og brekkusöngur.
  • Kl. 22:00 – 00:30 Dansleikur fyrir alla fjölskylduna í Skemmunni.
  • Frisbígolf alla helgina – diskar eru á staðnum.