Greinar
Blíðu­spá fyrir Jóns­messu­hátíðina næstu helgi

Blíðu­spá fyrir Jóns­messu­hátíðina næstu helgi

Byggiðn minnir á að Jónsmessuhátíð félagsins verður haldin á jörðinni Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi um komandi helgi, 26.-28. júní. Þar verður dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Frábær aðstaða er fyrir fjölskyldufólk á svæðinu; vel búið tjaldsvæði, nýlegt þjónustuhús og gott samkomuhús. Á meðal dagskrárliða verður barnasmiðja, frisbígolf, bingóganga, brekkusöngur og dansleikur.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru hlýindi í kortunum um helgina!

Hér má sjá myndir frá tjaldstæðinu. Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna!