
Ávarp: Munum aldrei láta staðar numið
„Skýr tengsl eru á milli ójöfnuðar, slæmrar fjárhagslegrar og félagslegrar stöðu og þunglyndis, kvíða, félagslegs óstöðugleika og sundrungar. Þess vegna þarf að auka tekjur ríkisins í stað þess að skera niður í menntakerfinu eða af lífeyrisréttindum láglaunafólks.“ Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ávarpi sem fulltrúaðráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, ASÍ, BSRB, Kennarasambands Íslands og BHM hefur sent frá sér í tilefni 1. maí. Ávarpið í heild má lesa hér fyrir neðan.
Fagfélögin minna á hátíðardagskrá sem verður í boði um land allt á morgun, fimmtudaginn 1. maí. Fagfélögin minna einnig á kaffiboð sem efnt verður til á Stórhöfða 29-31 á morgun. Boðið hefst klukkan 14 en gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin.
—
Ávarp Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, ASÍ, BSRB, Kennarasambands Íslands og BHM
Þegar fyrstu stéttarfélögin voru stofnuð á Íslandi fyrir rúmlega hundrað árum átti fólk ekki frí um helgar, rétt á launuðu sumarfríi, öryggisnet eins og atvinnuleysistryggingar eða veikindarétt, fæðingarorlof og ekkert félagslegt húsnæði stóð því til boða. Saga þeirra sem á undan okkur komu, sem töluðu sig niður á sameiginlega framtíðarsýn og breyttu samfélaginu sýnir hverju samstaðan getur skilað. Með því að sameinast um tiltekin málefni hverju sinni og leggja ólíkar skoðanir að öðru leyti til hliðar hefur verkalýðshreyfingin á Íslandi bætt líf þúsunda og tryggt bjartari framtíð næstu kynslóða.
Þann 1. maí á hverju ári söfnumst við saman, fögnum áfangasigrunum og leggjum fram kröfur okkar til að móta framtíðarsýn um það samfélag sem við viljum búa í – og þeirra sem á eftir okkur koma.
Í Reykjavík mun tilvísun í 1. maí 1970 setja sterkan svip á gönguna. Sá dagur markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfugöngu verkalýðsins með risastóra Venusarstyttu. Fjölmiðlar sögðu frá því að Rauðsokkahreyfingin hefði borið styttuna í óþökk fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar og nokkuð stapp var um hvort þær fengju að taka þátt í göngunni en eftir miklar samningaviðræður fengu þær á endanum að ganga aftast.
Líklega grunaði engan þá að Rauðsokkahreyfingin ætti eftir að breyta sögu tuttugustu aldarinnar. Nú, 55 árum síðar, býður fulltrúaráð verkalýðsins konum á rauðum sokkum að ganga fremst í kröfugöngunni á Kvennaári 2025.
Við í samtökum launafólks höfum tekið höndum saman við samtök kvenna, femínista, fatlaðs fólks og hinsegin fólks og lýst því yfir að árið 2025 sé Kvennaár þar sem sérstök áhersla er lögð á upprætingu kynbundins ofbeldis og launamunar kynjanna. Þrátt fyrir að margt hafi breyst til batnaðar undanfarna áratugi er jafnréttisbaráttunni ekki lokið. Hér á landi ríkir meira launamisrétti en í löndunum sem við berum okkur helst saman við og ofbeldi gegn konum er útbreitt. Við erum líka minnt á að ekkert stendur í stað – bakslags gætir í jafnréttismálum. Í samtökum launafólks er fólk af öllum kynjum, stéttum, fjölbreyttum uppruna og bakgrunni, hinsegin fólk og fatlað fólk. Við munum aldrei láta staðar numið í baráttu fyrir samfélagi jafnréttis og öryggis fyrir öll.
Við krefjumst einnig nauðsynlegrar og tímabærrar fjárfestingar í innviðum og fólki. Eitt meginhlutverk hins opinbera er að halda uppi öflugu velferðarkerfi þar sem öllum er tryggð örugg framfærsla, húsnæði, framúrskarandi heilbrigðis- og félagsþjónusta, menntun og öryggi, óháð búsetu og efnahag. Alltof lengi höfum við búið við stefnu stjórnvalda sem leggur meira upp úr að greiða niður skuldir en að styrkja velferð og þau kerfi sem við reiðum okkur á daglega. Skattar þeirra ríkustu hafa verið lækkaðir á meðan mikilvægar stofnanir í heilbrigðis-, félagsþjónustu- og menntakerfinu hafa verið fjársveltar allt frá aldamótum og ríkissjóður rekinn með halla í 6 ár. Núverandi ríkisstjórn ætlar að bregðast við þessari stöðu með enn meira aðhaldi og niðurskurði í stað tekjuöflunar.
Skýr tengsl eru á milli ójöfnuðar, slæmrar fjárhagslegrar og félagslegrar stöðu og þunglyndis, kvíða, félagslegs óstöðugleika og sundrungar. Þess vegna þarf að auka tekjur ríkisins í stað þess að skera niður í menntakerfinu eða af lífeyrisréttindum láglaunafólks.
Þrátt fyrir þessa alvarlegu stöðu fara sérhagsmunaöfl mikinn og krefjast meðal annars aukinnar einkavæðingar í grundvallarinnviðum, aukins niðurskurðar í ríkisútgjöldum, fækkun opinberra starfa, aukinnar markaðsvæðingu raforkugeirans, útvistunar á eftirliti hins opinbera og sölu ríkiseigna. Þessu mótmælum við harðlega og krefjumst þess að ríki og sveitarfélög bregðist af festu við vaxandi ójöfnuði sem birtist í stöðugt erfiðari afkomu launafólks. Ekki síst þeirra sem hingað til lands eru komin um langan veg til að sinna krefjandi láglaunastörfum. Við minnum á að auðlindir Íslands eru sameign þjóðarinnar og eiga að vera á forræði hennar. Ófremdarástand í húsnæðismálum bitnar verst á láglaunafólki og ríki og sveitarfélög verða að koma í veg fyrir þann skaða sem skortur á húsnæði á viðráðanlegu verði veldur. Almannahagsmunir verða að ráða för og samstaða, samtrygging og samkennd skal vera leiðarljós nauðsynlegrar endurreisnar velferðarkerfisins.
Fleiri og fleiri tala af léttúð um að taka réttindi af launafólki og veikja áhrif stéttarfélaga og verkfalla með breytingu lögum. Við vekjum athygli á að íslenska vinnumarkaðsmódelið er fyrirmynd margra ríkja ekki síst vegna góðrar þátttöku launafólks í stéttarfélögum – í því felst styrkur okkar. Við munum leggjast harðlega gegn öllum vanhugsuðum breytingum á forsendum sérhagsmunaafla.
Við erum líka ítrekað minnt á að baráttan fyrir betri kjörum er vörðuð hindrunum. Ræstingarfólk hefur verið svikið um kjarabætur samkvæmt kjarasamningi. Mörg af þessum störfum voru áður opinber störf sem var svo útvistað til að draga úr launakostnaði. Láglaunafólk geldur fyrir það með smánarkjörum og skaðlegu vinnuumhverfi. Við krefjumst þess að allt launafólk búi við öryggi, góðar starfsaðstæður og að laun endurspegli verðmætin sem störfin skapa.
Samfélagið sem við búum við í dag byggir á draumum, kröfum og baráttu þeirra sem á undan okkur komu – nú er það okkar að taka við keflinu, taka höndum saman og byggja upp betra samfélag saman. Við hvetjum öll til að sýna samstöðu í verki og taka þátt í kröfugöngu eða skipulagðri dagskrá samtaka launafólks um allt land.
Gleðilegan baráttudag!