Hljómsveit spilar í árlegu kaffiboði 15. febrúar
Árlegt kaffiboð eldri félaga Byggiðnar verður haldið sunnudaginn 15. febrúar, klukkan 14:00.
Kaffiboðið er venju samkvæmt haldið á Stórhöfða 31 en gengið er inn í húsið að neðanverðu (Grafarvogsmegin).
Að þessu sinni spilar hljómsveitin Strengir nokkur lög fyrir hópinn auk þess sem Stefán Pálsson sagnfræðingur flytur skemmtilegt erindi.
Allir félagar sem náð hafa lífeyrisaldri eru velkomnir.
Athugið að makar félagsmanna (og ekklar eða ekkjur) eru velkomnir.
